1. |
Glerkastalinn
03:56
|
|||
Ég byggi hærra, upp í ský
því ég vil sjá allan heiminn.
Ekkert betra en heimsmynd ný
og þau sögðu ég væri of dreymin?
en ég vil láta allt það kjurrt
man ekki lengur hverju var svarað
eða að hverju var spurt
en nú kemur það þér ekki við
hvernig ég byggi minn kastala-
lalalalalalala
Ég nota glerið og byggi upp
já ég stefni út í geiminn (hærra upp)
og það má enginn koma inn
því ég er alltof feimin.
Ég ligg í leynum
en ég sé allt
kastalaveggir úr gleri
sem speglast og brotna
og ég sé margfalt
en nú kemur það ekki öðrum við
hvernig ég byggi minn
kastala-
lalalalalalala
|
||||
2. |
Finna fyrir þér
02:55
|
|||
Ég vil finna fyrir þér inní mér
en tunglið hefur truflað okkur
það er ekkert nýtt.
Tunglið hefur fundið sína vídd
og það hefur sé þetta gerast hundað sinnum áður
svo ég skil það vel að hlæja
Ég vil finna fyrir þér inní mér
ég vil finna fyrir okkur að sameinast
Ég vil finna fyrir ástinni
en hún er enn ekki til staðar
Ég vil finna fyrir ljóðum í blóðinu
og skilja betur lögin í útvarpinu
um ástina...
Ég vil finna fyrir tunglinu sem þráir svo heitt sólina
en fær aldrei að snerta hana
Ég vil finna fyrir þér í sólinni
ég vil finna fyrir einhverju sem sameinar
okkur saman hérna undir sólinni
í tíma og rúmi við sameinumst.
|
||||
3. |
Keyrum úr borginni
02:54
|
|||
Keyrum úr borginni
klesst'ekki á
keyrum úr borginni
finnum upp þrá
og nóttin hún nærir
hvert munum við ná?
með þessari þrá.
Keyrum eitthvað út í sveit (langt í burtu)
Keyrum þar sem enginn veit (langt í burtu)
keyrum burt og sjáum til hvað gerist þá.
Keyri úr borginni
kless'ekki á
keyrum úr borginni
finnum upp þrá
Ég fann aldrei lykil að hjartanu hans
þess fallega manns
Keyrum eitthvað út í sveit (langt í burtu)
Keyrum þar sem enginn veit (langt í burtu)
keyrum burt úr borginni (langt í burtu)
burt frá gömlu sorginni (langt í burtu)
keyrum burt og sjáum til hvað gerist þá.
Ástin mín, þetta er pabbi þinn að hringja... uhm hvernig hefuru það? Viltu ekki fara að koma heim? Ég og mamma þín höfum áhyggjur af þér. Við erum búin að elda hérna æðislegan mat, það er pizza. Heyrðu allavega í mér.
|
||||
4. |
Ein
03:01
|
|||
Ein, full og veit ekki hvað ég vil
eða hvar ég mun enda í nótt
kannski við hliðiná þér
í eitt skipti enn enda ég aftur með þér
og svo fer hann, býður mér ekki með,
enn þá fær hann að sjá á eftir mér
Ein, full og veit ekki hvað ég vil
eða hvar ég mun enda í nótt
kannski við hliðiná þér
í eitt skipti enn enda ég aftur með þér
|
||||
5. |
Undir trjánum
03:17
|
|||
Undir trjánum á leiðinni stoppa ég stutt
þó að laufblöðin glitri eins og gimsteinar
því ég fékk nýja skó undir draumi sem dó
og ég undirbý ferð uppá næsta fjall
eins og þú
en ég ætlaði að telja í þér tennurnar
æj ég gleymdi að telja í þér tennurnar
Það er eitthvað við þig sem að hrærir í mér
kannski er það bara þaulæfða brosið þitt
en þú hringdir í nótt og ég skellti á fljótt
því ég höndla ekki þaulæfða brosið þitt
hvað vilt þú?
|
||||
6. |
Nýir draumar
04:03
|
|||
Leyfi mér að dreyma
leyfi mér að líða'ekki vel
leyfi mér að gleyma
stundum læt mér líða vel
Ég veit að það tekur stundum tíma að átta sig á
hvað það er sem skiptir máli, láta annað ekki á sig fá
Kannski er betra að bíða, kannski er betra að gera ekki neitt
þegar sárin svíða og ég er orðin of þreytt.
Gæti verið heima, eða farið niður í bæ
ég verð stundum stressuð en allt verður alltílæ
Það eru nýir draumar og svo hlýir straumar inní mér.
Sjáumst seinna því ég veit þú kemur aftur til mín
gæti verið betra seinna, ég kem þá til þín
hvað sem gerist skaltu vita að ég vil hafa þig
Ég vil hafa þig hjá mér, já mér alltaf við hlið.
Það eru nýir draumar og svo hlýir straumar inní mér.
Ég verð stundum stressuð en allt verður alltílæ.
|
||||
7. |
Bros'í sólina
01:59
|
|||
Þú þarft ekki að hika við að hringja í mig
þú veist ég hef alltaf pláss fyrir þig
Það er gott að gráta og skola út óreiðuna
og þegar það er búið, bros'í sólina.
|
Streaming and Download help
If you like k.óla, you may also like:
Bandcamp Daily your guide to the world of Bandcamp