1. |
||||
þig langar í franskar
mig langar fara heim með þér
þig langar í franskar
mig langar í þig
malar í kassanum,
einmana í miðnæturmóki
og hallar sér ráðviltt upp að manni í vesti
og ég læt víst oft eins og ég finni ekki neitt
en þú veist að ég hugsa ekki um annað en þig
hlustaðu á mig
hún er í skóm,
og hún hættir ekki að horfa niður
hún er í kjól,
en það gæti alltaf breyst
og þú veist vel að ég væri til í að sjá
en ég held ég sé ekki svo heppinn í kvöld
hlustaðu á mig
flauel og húð
og smá landi, þessu deilum við í kvöld
og hún er í peysu af mér
og þú braust í mér heila og hjarta og pung
en ég held að þú hugsir samt ennþá til mín
hlustaðu á mig
|
||||
2. |
skruðningar í stereo
04:56
|
|||
skruðningar í stereo
sem sinfónía
í lúin eyru og full
suð í þreyttum líkömum
í sambandi
kló í innstungu
-sítengdar sálir
stafræn núvitund-
stíg út nýútskrifaður
með plastpoka
í maganum fullan af
hrossaflugum
peningar í leðuról
æ, síbylja
rangra upplýsinga
komdu okkur í skilning um
æ, harmleiki
líðandi stundar
-nauðsyn samstöðu
vatn í plastflösku-
ljótu, vanþakklátu við
með brauðmola
á borðinu, nema hvað
|
||||
3. |
pepperoni project
04:53
|
|||
hver ertu
úr hverju
ertu gerður
pepperoni
ég þrái að þekkja
hvað býr innra með þér
er það svín eða kú eða bæði ?
taktu kryddpylsusneiðmynd
af hjartanu í mér
og sjáðu að þar er ekkert nema
þeyttur rjómi
reyktur lax
skinka og ostur
pepperoni
rétt eins og ég
borða þig nú
kryddpylsan mín
kyngir þú mér
en veist ekkert hver ég er
hver ertu
úr hverju
ertu gerður
pepperoni
|
||||
4. |
á næstunni
04:04
|
|||
á næstunni
ég er ekki væntanlegur heim,
ekki frekar en fyrri daginn
á næstunni
ég ætla ekki að setjast upp í bíl
og keyra út í geim
ég hef sofið
hvar þar sem ég fæ rúm ;
grafarvgi, mosfellsbæ,
hafnarfirði, kópavogi
skiptir það þig þá máli
hvar ég sef, ef þú þarft ekki að sjá mig ?
því ég hef ekki fengið rúm
vestur frá í smá tíma
rúm sem ég á þó að heita að eiga
á næstunni
ég er ekki væntanlegur heim,
ekki frekar en fyrri daginn
á næstunni
ég ætla ekki að setjast upp í bíl
og keyra út í geim
en hvernig líður þér með að
ég sé að borða kvöldmat
á bensínstöð
þriðja daginn í röð ?
ég hef logið
hvar sem ég er spurður
skiptir það þig líka einhverju máli
hvað er satt og hvað er logið ?
sannleikurinn þinn er nefnilega sá
eini sem skiptir máli
það kemst ekkert annað að hjá þér
svo ég held það sé hægt að segja að
á næstunni
sé ég ekki væntanlegur heim,
ekki frekar en fyrri daginn
á næstunni
ég ætla ekki að setjast upp í bíl
og keyra út í geim
|
||||
5. |
||||
ég var á báðum áttum
en bráðum máttu
rétta mér
rjómann
verðandi
eyrnapinnamat.
ég er með pizzubragð á tungunni
pizzulykt á fingrunum
og fjóra stóra bjóra
í maganum eins og stein
og þó ég myndi kasta upp
hverju einasta líffæri inni í mér
gæti mér samt varla liðið vel
með hver ég er
-JÆJA;
aðrar 380 krónur í vaskinn
-eða klósettið öllu heldur
-ég er strákur með kók í gleri flensu
ég er strákur með kók í gleri flensu
|
post-dreifing Reykjavík, Iceland
Post-dreifing is an art collective, mostly made up of young artists, coming from different corners of the Reykjavík grassroot scene. The group´s main goal is to build visibility and self-sufficiency for artists through collaboration.
Streaming and Download help
If you like JÆJA., you may also like:
Bandcamp Daily your guide to the world of Bandcamp