1. |
Skoffín flytur í borgina
06:22
|
|||
þú segir mér
þú segir mér að lífið sé svona
þú segir mér
þú segir mér að lífið sé svona
ég heiti peð
halló ég er peð í stóra samhenginu
jeg hedder ped
ég heiti peð í stóra samhenginu
allt á svart og hvítu
þú segir mér
að grasið sé grænna hinumegin
þú segir mér
að grasið sé grænna hinumegin
hvað er verra en að deyja?
það er að flytja í borgina
allt er búið
ekkert er nýtt
eilífðin er innantóm
allt á svart og hvítu
|
||||
2. |
Bína Bína
02:21
|
|||
þú segir lífið vera skrýtið en skemmtilegt
með furðulegar tímasetningar
sumrinu lauk áður en það leið
í draumum mínum finnurðu aftökur
en stundum finnurðu fleiri drauma
í einum þannig varst þú og þú varst reið
þú sagðir ég hef ekkert að gera við svona
mér finnst best bara að bíða og vona
en sumrinu lauk áður en það leið
og þegar fyrstu geislar sólarinnar
fara að skína
þá kyssi ég þig á kinnina
bína bína
það hryggir mig að þú sért að fara burt
en komdu bara aftur hvað segirðu?
manstu, ég var blái prinsinn þinn
og jæja ég er ekkert góður að kveðja svona
mér finnst best bara að bíða og vona
en ég verð ávallt blái prinsinn þinn
ég og þú
þú og ég
bara við tvö, bara við tvö
bara við tvö og tunglið
og jæja hugurinn minn er fullur af fiðrildum
ég vona að þetta endi ekki í illindum
framtíðin er óskrifað blað
og já ég leitaði langt og lengi
ég fór alla leiðina til kína
þegar sannleikurinn var hér allan tímann
og ja ég leitaði langt og lengi
ég fór alla leiðina til kína
en ég elska bara þig
bína bína
|
||||
3. |
Ég veit
02:07
|
|||
í gerviheimi, gervilimirnir
dansa úti í gervinóttinni
ég veit að það er líka mynd af mér
ég held hún hangi upp á vegg hjá þér
ég veit að það er mynd af mér
ég held hún hangi upp hjá þér
ég veit ég veit ég veit
en látum það vera
gervimiðlar, gervitilfinning
er ekkert heilagt hver er meiningin?
ég veit þau vita líka allt um mig
ég gaf þeim óvart kreditkortið mitt
ég veit ég hefði átt að sjá
ég veit þau segja öllum frá
ég veit ég veit ég veit
en látum það vera
ekkert eftir allt er tilbúið
segðu mér frá nýju plötunni
sem þú tókst bara upp á símann þinn
engin tónar, bara ambient
hljóð af bænum, þetta er framtíðin
kannski ég selji rafmagnsgítarinn
ég veit ég hefði átt að sjá
ég veit þau segja öllum frá
ég veit ég veit ég veit ég veit
ég veit
ég veit þau reyna að selja mér
að b sé bara öfugt d
ég veit ég veit ég veit….
en látum það vera
|
||||
4. |
Lala Rookh
01:55
|
|||
þeir sigldu inn um sundin já
grá og skítug
sýndist mér sjá djöfulinn
með hala og gleraugu
lala rookh
hefurðu heyrt fréttirnar
hún hvarf í jörðina
sál hennar hún seytlaði
við selvogsvita
ég vildi aldrei vera með þarna
en skipstjórinn tróð mér í vörina
lala rookh
|
||||
5. |
Sígarettur og vín
03:20
|
|||
ég er í partýi á njálsgötunni
partýi sem ég nenni ekki að vera í
allt flæðir bæði samtölin og vín
mér er alveg sama um afrek þín
ég er í partýi og nenni ekki því
hún króaði mig af í kelerí
mig langar bara í sígarettu og vín
ég vil í koss með sígarettunni
af hverju þarf svona langt að líða
hversu lengi þarf ég eiginlega að bíða
uns ég kemst út að svala minni fíkn
ég skal sko klára pakka í einum rykk
sígaretturnar og vín
ég er að leita að undankomuleið
er þetta hægt er leiðin nógu greið?
þið virtust ekki kunna mér á skil
en sama er mér, það gerir ekkert til
sígaretturnar og vín
ég er í partýi á njalsgötunni
mér væri næst að stökkva úr hallgrímskirkjuturni
mér leiðist þú mér leiðist þetta grín
mér leiðist fólk ég sígarettu og vín
sígaretturnar og vín
|
||||
6. |
Skoffín bjargar heiminum
03:02
|
|||
hér er kalda rokrassgat
er og verður alltaf
hér sé ljóta góðærið
er og verður alltaf
en einlægnin á milli elskenda
ég er ekki neytandi
ég er litla skoffínið
hvar færðu þessa peninga?
arðrænirðu aðra?
og ef ég væri ekki í skóla
þyrfti ég að vinna í allan dag
hver vill bjarga heiminum?
hver vill ríða tunglinu?
hér er kalda rokrassgat
er, og verður alltaf
einlægnin á milli elskenda
tveggja, glæða mína daga
|
||||
7. |
Risar
05:18
|
|||
ég hef brynnt þessum músagangi um stund
svo mikið að mýsnar drukknuðu
steindauðar á stofugólfinu
ég skipulegg fjöldamúsajarðaför
ég veit ég er meyr
ég veit ég er mjúkur
þessi búkur er engum til gagns
ég vildi að ég væri stærri
því risar gnæfa yfir allt
hann gaf henni bláar gerberur
því rósir eru alltof hefðbundnar
milli svefns og vöku finn ég mig
öskrandi á fullt tunglið
segðu mér að harkið skili sér
segðu mér að ég standi mig svo vel
við sköpum okkur æðri sannleika
og sjáum um að niðurbrjóta hann
ég veit ég er meyr
ég veit ég er mjúkur
þessi búkur er engum til gagns
ég vildi að ég væri stærri
því risar gnæfa yfir allt
|
||||
8. |
||||
þegar höfuð falla í skaut á lærum kvenmanns
og ástarorðin vörpuð fram af tungum
þegar tónlist fyllir vit og vitin sljóvgast
þá er gott að elska og vera ungur
ef leigan hækkar plönin verða úrelt
og hugur sígur hratt og verður þungur
brennivínið breiddu um þínar varir
og þenktu: það er gott að elska og vera ungur
ef spírum er já nóg af og þær helling
og seðlar mynda í buxum þínum bungur
og bankinn slakar lánið geggjað mikið
þá er sko gott að elska og vera ungur
ef snellan rífur í og askan fýkur
og reykurinn fer beint ofan í lungu
og stelpan brosir til þín sínu breiða
þá er svo gott að elska og vera ungur
þá er gott að elska
og vera ungur
|
||||
9. |
Lísa Lísa
03:16
|
|||
lísa elskar mig
hún klæðir nærbuxur í sig
og spyr mig
„hvernig dóstu í fyrra lífi?“
lísa jóns um aftanbil
hellir eitrinu í mig
og stamar lofsönginn
og lofar þjóðríkið
lísa lísa ég ætlaði
að skrifa lag um ísbjörninn
en það gekk ekki eftir
mér skrikaði
lísa lísa
ég veit að þú ert skvísa
ísbjörninn er myndlíking
fyrir íslending
lísa jóns um morguninn
færði kaffi í munninn sinn
og mælti
„ég segi þér aldrei leyndarmálin mín“
lísa lísa ég er einungis
gluggi í ástarferð þinni
við lofum
að verða aldrei aftur ástfangin
lísa lísa ég ætlaði
að sýna þér hvar ég byggi
en það gekk ekki eftir
ég steingleymdi
lísa lísa
ég veit að þú ert skvísa
ísbjörninn er myndlíking
fyrir íslending
ég sting íslenska fánanum upp í mig
og borða landið sem fæddi mig
jónas hallgrímsson!
jónas hallgrímsson!
hví öskrarðu alltaf á mig í upphafi ljóða?
ertu eitthvað hræddur um að ég sé ekki að hlusta?
þínir dagar löngu taldir
og mínir eflaust líka
kaldhæðnin er rómantísk
kallaðu mig píka
lísa lísa
ég veit að þú ert skvísa
ísbjörninn er myndlíking
fyrir íslending
lísa lísa
ég veit að þú ert sko skvísa
ísbjörninn er myndlíking,
ísbjörninn er myndlíking,
ísbjörninn er myndlíking
fyrir íslending
|
||||
10. |
(Ekki) Leonard C
04:10
|
|||
vissir þú að rósavín
er ekki framleitt úr rósum?
og ég er lífsleiður
orðinn leiður á lífinu?
ég verð líklegast
að sætta mig við það
að neyslumynstur okkar
er ekki sjálfbært
heimurinn eins og við þekkjum hann
í auknum mæli er að minnka
og ég, í stjörnukerfi þjóðfélaga
minnka með honum
ég verð líklegast
að sætta mig við það
að ég muni aldrei
finna ástina
þó að ég
sé að reyna að ganga í augun á þér
þá er ég ekki leonard c
ótalmargar eru þær staðreyndar
sem auðveldlega má nálgast
en passa þarf sig að heimildin
sé ekki notuð sem málgagn
ég verð líklegast
að sætta mig við það
að ég muni aldrei
finna ástina
þó að ég
sé að reyna að hlaupa í augun á þér
þá er ég ekki leonard c
|
||||
11. |
Stökur
01:26
|
|||
þér gull mín get ég gefið
þó ekki séu glæst
trúirðu því ástin mín
að draumar geti ræst?
ekki skaltu kvelja
litla hjartað mitt
ef byðist mér nú fé og frægð
þá held ég velji þig
eitt sinn gat ég grátið
úr gleði sem þú gafst
en nú er sút mín alltof slæm
úr greipum mér þú rannst
ást mín til þín er mikil
til tunglsins mun hún ná
ég mun ei hætta að elska þig
um lífsins ókomin ár
|
post-dreifing Reykjavík, Iceland
Post-dreifing is an art collective, mostly made up of young artists, coming from different corners of the Reykjavík grassroot scene. The group´s main goal is to build visibility and self-sufficiency for artists through collaboration.
Streaming and Download help
If you like Skoffín bjargar heiminum, you may also like:
Bandcamp Daily your guide to the world of Bandcamp